Vinnuskólinn

Teikning af unglingi að vökva blóm.

Tilkynnt verður þegar skráningar í hefjast í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 2025. Þjónustuskrifstofa Vinnuskólans hefur ekki hafið störf fyrir en fyrirspurnir sem berast á tölvupóstfangið vinnuskoli@reykjavik.is verður svarað jafnóðum. 

Vinnuskólinn er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga barna sem vinna þar sem og foreldra þeirra og ber Vinnuskólinn ábyrgð á því að unnið sé með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarlög. Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað í Vinnuskóla Reykjavíkurborgar má finna  á síðu Vinnuskólans undir verkefni og vinnuvernd; vinnsla persónuupplýsinga í Vinnuskóla Reykjavíkur.

Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni.

Skráning - ekki hafin fyrir 2025

Foreldrar skrá sína unglinga í unglingavinnu Vinnuskólans í gegnum rafrænt skráningarform. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Allir nemendur úr 8., 9. og 10. bekkjum sem skráðir eru fá vinnu.

Laun

Upplýsingar um tímakaup, launatímabil, launaseðla, orlofsgreiðslur, persónuafslátt, veikindi og leyfi.

Teikning af persónu sem les blaðið og hjólar á hundrað krónu peningi..

Samstarfsaðilar

Vinnuskólinn hefur líka aðgang að mörgum samstarfsaðilum sem hjálpa okkur að veita ungmennum fjölbreytta reynslu á vinnumarkaði.

Þau sem eru að ljúka við nám í 10. bekk geta sótt um öll störfin sem við höfum upp á að bjóða en þau sem eru að ljúka við nám í 9. bekk geta einnig sótt um ýmis störf.

Hver starfsstaður er tengdur aldurstakmörkunum í kerfinu okkar sem þýðir að nemendur sjá aðeins þá kosti sem þau geta sótt um. Hér að neðan má sjá samstarfsaðila okkar sumarið 2025.

Hvaða störf eru í boði?

Daglegur vinnutími

Starfstímabil

Hópar

Nemendum er raðað í hópa eftir aldri og búsetu. Í dag eru það undantekningar ef nemendur raðast í hópa utan síns hverfis.

Í nokkrum tilvikum er 9. og 10. bekk raðað saman í hóp, þá yfirleitt í skólum með fáum nemendum. 

Yfirleitt raðast nemendur í hóp með jafnöldrum sínum úr sama skóla en ekki er gert ráð fyrir að vinir eða vinkonur raðist sérstaklega saman. Við lítum svo á að öllum sé hollt að kynnast nýju fólki og starfa með öðrum en sínum nánustu vinum. 

Starfsstöðvar og aðstaða

Við erum með starfsstöðvar við flesta grunnskóla borgarinnar og flestir nemendur raðast því í þann skóla sem þeir búa næst , svo lengi sem starfsstöð sé í þeim grunnskóla.

  • Þar sem vinnan fer öll fram utandyra er nauðsynlegt að nemendur hafi meðferðis hlífðarfatnað og góða vinnuskó. Vinnuskólinn útvegar nemendum vinnuhanska.
  • Aðstaða fyrir matarhlé er í öllum starfsstöðvum. 
  • Mikilvægt er að nemendur hafi með sér gott nesti og drykkjarföng því ekki er gert ráð fyrir því að farið sé í búðir í matar- og kaffitímum.

Verkefni og vinnuvernd

Vinnuskólinn er útiskóli og flest verkefni skólans snúa að umhirðu gróðurs og beða víðs vegar í borginni. 

 

Málningarverkefni eru einhver á hverju sumri og eru þau einkum hugsuð fyrir nemendur með gróðurofnæmi.

Fræðsla

Vinnuskóli Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að veita nemendum góða upplifun og fræðslu í fyrstu skrefum þeirra á vinnumarkaði. 

 

Vinnuskólinn veitir meðal annars fræðslu um launaseðla, ferilskrár, vinnusiðferði og tekjuskatt. Fræðslan tekur mið af aldri nemenda.

Fleiri spurningar?

Sendið fyrirspurnir á vinnuskoli@reykjavik.is

eða hringið í s. 411-1111

  • Skrifstofa Vinnuskólans - Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík. 
  • Þjónustumiðstöð Vinnuskólans - Fiskislóð 37C, 101 Reykjavík.